Undirskriftasöfnun · Rafræn undirskrift fer fram á Ísland.is
Hugmyndamynd: 30 vindmyllur, 200 m háar, á gróinni heiði á Melrakkasléttu. Hallgrímskirkja, 74 m, er sett inn til samanburðar.

Hugmyndamynd sem sýnir afstöðu til fyrirhugaðrar framkvæmdar. Nákvæmari mynd í réttri fjarlægð er í 360° kaflanum. Ekki staðfest ásýndarlíkan Hnotasteins; staðsetning, fjöldi vindmylla og sjónræn hlutföll hafa ekki verið sannreynd. Bakgrunnsljósmynd: Spike, Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0.

Melrakkaslétta · Náttúra · Framtíð

Land sem á skilið að njóta vafans.

Ósnortin víðerni eru dýrmæt og fáséð í Evrópu.

Vindorkuver á Hólaheiði við Hnotastein hefði veruleg sjónræn áhrif á stórt og lítt snortið svæði og gæti haft áhrif á ríkulegt fuglalíf. Áhrifin yrðu varanleg og óafturkræf. Við skorum á sveitarstjórn Norðurþings að falla frá hugmyndum um iðnaðarsvæði á Hólaheiði.

Staðan · 13.10.2026

Eftir endurmat leggur verkefnisstjórn rammaáætlunar aftur til að Hnotasteinn fari í biðflokk – ekki nýtingarflokk. Umsagnarfrestur í Samráðsgátt er til 4. janúar 2027. Sveitarstjórn Norðurþings hefur ekki lýst yfir formlegri afstöðu. Ákvörðunin er enn opin – undirskriftasöfnun stendur til 16. desember 2026.

Skoða tímalínu ↓
01 / Hlustaðu

Kyrrðin er hluti af landinu.

Tvær upptökur eftir Magnús Bergsson. Önnur er tekin á Hólaheiði á Melrakkasléttu, hin við vindmyllur.

Svona hljómar Melrakkaslétta

Svona hljóma vindmyllur

Hljóðupptökur: Magnús Bergsson, Hljóðmynd – fieldrecording.net. Fjögurra mínútna brot úr lengri upptökum, tekin á mismunandi stöðum og með mismunandi búnaði; hljóðstyrkur er eins og hann var tekinn upp. Ljósmynd: Magnús Bergsson.

02 / Sjáðu sjálf

Snúðu þér í 360°.

360° mynd tekin á Melrakkasléttu 3. október 2026. Vindmyllurnar 30 eru settar inn í réttri stærð og fjarlægð, 12–17 km frá myndavélinni. Hnapparnir „3 km“ og „500 m“ sýna dæmi um hvernig þær myndu blasa við nær, til dæmis frá bæ, vegi eða útivistarsvæði.

Dragðu til að snúa þér, þysjaðu með músarhjóli eða tveimur fingrum. Hnappurinn „Fela vindmyllur“ sýnir landslagið eins og það er í dag. 360° ljósmynd og vinnsla: Sigursteinn Baldursson, Kúlumyndir 32.

Opna í fullum skjá ↗
03 / Nýtt mat · október 2026

Mesta náttúruraskið af sjö kostum.

Verkefnisstjórn rammaáætlunar birti 13. október 2026 nýtt mat á sjö vindorkukostum. Hnotasteinn kemur verst út fyrir náttúruna, en er samt ekki lagður til í verndarflokk heldur í biðflokk 33.

16,8 / 20
Áhrif á óbyggð víðerni

Langhæst af sjö kostum. Næst koma Sólheimar með 12. Verkefnisstjórn lýsir áhrifunum sem mjög neikvæðum.

6,3
Heildaráhrif á náttúru- og menningarminjar

Hæsta einkunn allra sjö kostanna hjá faghópi 1.

5,6
Áhrif á vatnafar

Hæst af sjö – hinir kostirnir eru á bilinu 0,4–2,8. Berggrunnur fær líka hæstu einkunn: 6,4.

Heildaráhrif á náttúru- og menningarminjarEinkunn faghóps 1 og tillaga verkefnisstjórnar. Hærri tala = meiri áhrif.
  • Verndarflokkur
  • Biðflokkur
  • Nýtingarflokkur
  1. Hnotasteinn6,3BiðflokkurHnotasteinn · 150–216 MW
    Heildaráhrif 6,3 · víðerni 16,8 af 20
    Tillaga: Biðflokkur
  2. Sólheimar5,4VerndarflokkurSólheimar · 75 MW
    Heildaráhrif 5,4 · víðerni 12,0 af 20
    Tillaga: Verndarflokkur
  3. Alviðra4,8BiðflokkurAlviðra · 98 MW
    Heildaráhrif 4,8 · víðerni 3,4 af 20
    Tillaga: Biðflokkur
  4. Hrútmúli4,4VerndarflokkurHrútmúli · 101 MW
    Heildaráhrif 4,4 · víðerni 3,4 af 20
    Tillaga: Verndarflokkur
  5. Garpsdalur3,7NýtingarflokkurGarpsdalur · 75 MW
    Heildaráhrif 3,7 · víðerni 7,2 af 20
    Tillaga: Nýtingarflokkur
  6. Mosfellsheiði I3,7VerndarflokkurMosfellsheiði I · 100 MW
    Heildaráhrif 3,7 · víðerni 0,2 af 20
    Tillaga: Verndarflokkur
  7. Mosfellsheiði II3,7VerndarflokkurMosfellsheiði II · 100 MW
    Heildaráhrif 3,7 · víðerni 0,2 af 20
    Tillaga: Verndarflokkur

Fjórir kostir með minni áhrif á náttúruna fara í verndarflokk. Hnotasteinn, með mestu áhrifin, fer í bið. Flokkunin byggir að vísu á fleiri þáttum – Mosfellsheiði fékk t.d. hæstu einkunn fyrir áhrif á útivist (10 af 10) – en hvergi kemur Hnotasteinn vel út fyrir náttúruna 33.

Qair segir

Hnotasteinn sé ekki í kjarna víðernis samkvæmt víðerniskortlagningu, þótt einhverjar myllur kunni að sjást þaðan. Myllurnar verði allt að 30, allt að 200 m háar og allt að 7,2 MW hver.

Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair Ísland · Vísir, 12. maí 2026 34
Rammaáætlun segir

„Mjög neikvæð áhrif á óbyggð víðerni.“ Víðernin fá 16,8 af 20 – meira en nokkur annar kostur. Og 30 myllur × 7,2 MW = 216 MW, sama tala og stærri útgáfan í mati rammaáætlunar.

Skýrsla verkefnisstjórnar 6. áfanga · október 2026 33
Annað sem þú getur gert

Sendu umsögn fyrir 4. janúar 2027

Undirskriftalistinn fer til Norðurþings. Umsögn í Samráðsgátt fer beint til verkefnisstjórnar rammaáætlunar, sem skilar lokatillögu til ráðherra í febrúar 2027. Hver umsögn er lesin og birt.

  1. Opnaðu mál 4349 í Samráðsgátt.
  2. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
  3. Afritaðu drögin hér, bættu við eigin orðum og sendu.

Umsögn með eigin orðum vegur þyngra en eins texti frá mörgum. Notaðu drögin sem grunn.

04 / Framkvæmdin

Hvað er fyrirhugað?

Hnotasteinn er vindorkuverkefni Qair Íslands á Hólaheiði, um 6,5 km austan við Kópasker. Hér eru helstu stærðir samkvæmt upplýsingum framkvæmdaraðila.

Áform Qair30vindmyllur að hámarki 01
Áform Qair216MWum það bil uppsett afl 01
Forsenda mats200mhámarkshæð með spaða – tæplega þrjár Hallgrímskirkjur 02

Uppsett afl er ekki stöðug framleiðsla og endanleg gerð vindmylla hefur ekki verið valin. Í matsáætlun frá 2021 var miðað við 34 vindmyllur og 200 MW 06, og í rammaáætlun er kosturinn metinn um 220 MW 05.

Meira en vindmyllurnar sjálfar

Hverri myllu fylgja steyptur grunnur allt að 30 m í þvermál, kranaplan og vegur. Qair áætlar gróflega 21.000 m³ af steypu og 1.800 tonn af stáli í undirstöður 30 vindmylla 02. Samkvæmt matsáætlun þarf um 17 km af nýjum vegum innan svæðisins og um 250.000 m³ af fyllingarefni 06.

Samfélag og atvinna

Fleiri en ein hlið á málinu

Qair telur verkefnið geta skapað störf, aukið raforkuframboð og stutt uppbyggingu innviða 01. Á rekstrartíma er gert ráð fyrir fáum föstum störfum 06. Verkefnisstjórn rammaáætlunar benti á að tengikostnaður við flutningskerfið sé mjög hár, 10–14 milljarðar króna 05.

Rannsóknarsvæðið að Hnotasteini (gulgrænt) innan mikilvægs fuglasvæðis. Kort byggt á korti EFLU 06.

Hvar er Hnotasteinn?

Á Hólaheiði í Núpasveit, fyrir miðri Melrakkasléttu. Heiðin er flatlend – gróið mólendi, hraun frá nútíma og smávötn. Rannsóknarsvæðið er 3.330 ha.

Gangnamannaskáli
850 m
Næsta bóndabýli
2,9 km
Kópasker
6,5 km
Vatnajökulsþjóðgarður
22 km
Dettifoss
45 km
Sýnileiki metinn allt að
45 km
  • Rannsóknarsvæði: 3.330 ha
  • Svæði vindorkuvers: um fimmtungur
  • Varanlegt rask: 54 ha

Skoðaðu svæðið á Google Maps

Opna í Google Maps ↗

Gervihnattamynd frá Google. Hægt er að færa kortið, þysja inn og skoða heiðina nánar.

Nánari tæknilýsing úr matsáætlun 2021
FramkvæmdaþátturStærðSvæðiTími
Grunnar undir vindmyllurAllt að 30 m í þvermál2,4 haVaranleg
Undirstöður undir vindmyllur1.610 m² hver5,5 haVaranleg
Nýir vegir og jarðstrengir17.000 × 4,5 m45,9 haVaranleg
Safnstöð, tengivirki og skrifstofur3.000 m²0,3 haVaranleg
Vinnuplön við vindmyllur2.240 m² hvert7,6 ha1 mánuður
Efnisgeymsla1.640 m²5,6 ha10 mánuðir

Viðmiðunargerð: Vestas V162‑5.6 MW, miðja í 119 m hæð og 162 m spaðahringur. Framkvæmdatími um 12 mánuðir, líklega dreift á tvö ár, með allt að 100 starfsmönnum. Rekstrartími minnst 25 ár. Tenging við tengivirki Landsnets á Snartarstöðum með 33 kV jarðstrengjum 06.

05 / Náttúra og fuglalíf

Ekki tómt land.
Lifandi landslag.

Heimkynni sem skipta máli.

Heiðar, vötn og votlendi Melrakkasléttu eru hluti af alþjóðlega mikilvægu fuglasvæði. Lómur, himbrimi og fálki eru meðal þeirra tegunda sem skráðar eru í gögnum Náttúrufræðistofnunar 03.

Lómur á vatni
Ljósmynd: Dick Daniels · CC BY-SA 3.0
Gavia stellata

Lómur

110varppörGögn frá 2016 · Melrakkaslétta
Himbrimi á vatni
Ljósmynd: Dick Daniels · CC BY-SA 3.0
Gavia immer

Himbrimi

16þekkt óðulGögn frá 2016 · Melrakkaslétta
Fálki á steini
Ljósmynd: Ólafur Larsen · CC BY-SA 2.0
Falco rusticolus

Fálki

14þekkt óðulGögn frá 2016 · Melrakkaslétta

Um gögnin. Tölurnar eiga við víðara svæði Melrakkasléttu, ekki eingöngu Hnotastein. Þær eru söguleg gögn frá 2016, ekki ný talning eða spá um fugladauða.

Um myndirnar. Myndirnar sýna tegundirnar og eru ekki teknar á Melrakkasléttu. Lómurinn er í vetrarbúningi.

Hvað er í húfi?

Fuglalíf

Melrakkaslétta er á náttúruminjaskrá, tilnefnd vegna fugla og ferskvatns- og fjöruvistgerða 03. Rjúpa og grágæs eru í yfirvofandi hættu á nýjum válista fugla frá 2025 27. Rjúpan flýgur mikið í rökkri, þegar athugendur eru ekki á vettvangi. Heimafólk hefur spurt hvað teljist ásættanlegur fugladauði 06.

Víðerni og ásýnd

Svæðið er óbyggt og að mestu óraskað. Sýnileiki verður metinn allt að 45 km frá ystu myllum; í aðalskipulagi Norðurþings segir að forðast skuli rask á ósnortnum víðernum 06.

Myrkur og norðurljós

Hólaheiði er laus við ljósmengun og rætt hefur verið um að nýta hana til norðurljósa- og stjörnuskoðunar 06. Myllur yfir 100 m þarf að lýsa vegna flugöryggis.

Votlendi og hraun

Vestast á svæðinu er votlendi með mjög hátt verndargildi, og hluti þess er nútímahraun. Hvort tveggja nýtur sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum 06.

Útivist og saga

Gamla þjóðleiðin Hólsstígur liggur við jaðar svæðisins, göngu- og reiðleið liggur þvert yfir það og þar er gönguskíðaland.

Ferðaþjónusta

Norðurstrandarleið (Arctic Coast Way) og Fuglastígur liggja hjá. Á Kópaskeri eru gistihús, Skjálftasetur og fuglaskoðunarhús.

Jarðvegur og grunnvatn

Hvað fer í jörðina?

Hér er farið yfir það sem matsáætlunin segir um grunnvatn, og hvað rannsóknir segja um örplast og epoxý sem losnar af spöðum vindmylla.

Grunnvatn í hrauni er viðkvæmt

Samkvæmt matsáætlun hripar vatn auðveldlega niður í hraunið á svæðinu, svo grunnvatn getur verið viðkvæmt fyrir mengun. Við suðvesturjaðar svæðisins er fjarsvæði vatnsverndar og nokkur vötn og tjarnir innan þess njóta sérstakrar verndar 06.

Mesta áhættan er á framkvæmdatíma: um 17 km af nýjum vegum, um 250.000 m³ af fyllingarefni og þúsundir rúmmetra af steypu. Á rekstrartíma gæti þurft um 500 lítra af olíu á hverja myllu á fimm ára fresti 06. Framkvæmdaraðili segir að steypa verði ekki blönduð á staðnum og að efni verði ekki geymd þar.

Örplast og epoxý af spöðum

Regn, hagl og sandfok slíta smám saman fremstu brún spaðanna, svo agnir úr hlífðarhúð og epoxýi losna og falla til jarðar. Rannsókn við DTU í Danmörku metur losunina 8–50 g á ári fyrir hvert blað á landi 13.

Fyrir 30 myllur með þremur spöðum hver gerir það um 0,7–4,5 kg á ári, eða um 18–110 kg á 25 ára rekstrartíma. Það er lítið miðað við aðrar uppsprettur eins og dekkjaslit 13. Mat á losun bisfenóls A (BPA) bendir til að hún sé mjög lítil 15.

Það sem ekki er vitað

Engar rannsóknir hafa farið fram á Melrakkasléttu á því hvernig agnir úr spöðum, örplast og epoxý, hefðu áhrif á jarðveg og grunnvatn. Þær rannsóknir sem til eru hafa flestar verið gerðar á hafi úti eða í Danmörku og Hollandi, við allt aðrar aðstæður en í gljúpu hrauni og votlendi Hólaheiðar, þar sem vatn á greiða leið niður í grunnvatn. Hraði slitsins ræðst af veðri, og eldfjallasandur og hagl geta aukið það. Við teljum að þessi óvissa eigi heima í umhverfismatinu.

Athugið: Oft er vitnað í norska skýrslu frá 2021 sem mat losunina 62 kg á hverja myllu á ári 16. Síðari ritrýnd rannsókn sýndi að þar var prósenta úr litlum prófsýnum ranglega yfirfærð á heil blöð 14, og við notum þá tölu því ekki.

Spaðarnir

Efni, förgun og hraði.

Þrjár staðreyndir um spaðana sem myndu snúast yfir Hólaheiði.

Epoxý úr bisfenóli

Árið 2013 fór um 27% af allri epoxýnotkun í Evrópu í spaða vindmylla 16. Algengasta epoxýið er framleitt úr bisfenóli A (BPA), efni sem mörg ríki hafa takmarkað í neysluvörum.

300 km á klukkustund

Miðað er við vindmyllu á borð við Vestas V162: hámarkssnúningur 10 snúningar á mínútu og 162 m spaðahringur 18. Spaðaendinn fer því um 300 km á klukkustund, margfalt hraðar en fuglar fljúga almennt. Sjá samanburð ↓

Þrír fótboltavellir á hverja myllu

Hver vindmylla sópar yfir um 20.600 m² 18, á við um þrjá fótboltavelli. Með 30 myllum yrði það yfir 60 hektarar af loftrými þar sem lómur, himbrimi, grágæs og rjúpa fljúga um.

Hver sleppur?

Hraði nokkurra íslenskra fugla borinn saman við spaðaenda vindmyllu, í km á klukkustund. Enginn þeirra nær spaðaendanum, ekki einu sinni fálki í steypiflugi.

Mesti mældi hraðiVenjulegt flug
SpaðaendiVestas V162 við hámarkssnúning
~305 km/klst.
Fálkisteypiflug og venjulegt flug
~209 km/klst.40–56 km/klst.
Himbrimifarflug, mælt með ratsjá
~121 km/klst.
Álftvenjulegt flug og mesti hraði
~100 km/klst.~60 km/klst.
Hrossagaukurhneggflug · 39–84 km/klst.
~84 km/klst.
Lómurfarflug
~74 km/klst.
Lóafarflug · mælt á grálóu
~59 km/klst.
Haförnfarflug
~52 km/klst.

Tölurnar koma úr mismunandi mælingum (farflug, veiðiflug, steypiflug) og eru viðmið, ekki nákvæmur samanburður. Fyrir lóu er notuð mæling á grálóu, náskyldri tegund. Fræðilega gæti fálki náð allt að 250 km/klst. í mjög löngu steypiflugi 23.

Hvert fara 90 spaðar eftir 25 ár?

Hnotasteinn yrði með 30 myllur og 90 spaða, hver um 80 m að lengd. Lagðir enda í enda næðu þeir um 7,2 km – lengra en frá framkvæmdasvæðinu til Kópaskers.

7,2 kmaf spöðum

Til samanburðar

Spaðarnir, lagðir enda í enda
7,2 km
Vaðlaheiðargöng (í bergi) 24
7,2 km
Lengri leggur Héðinsfjarðarganga 25
6,9 km
Frá framkvæmdasvæðinu til Kópaskers 06
6,5 km
Hvalfjarðargöng 25
5,8 km
Laugavegur í Reykjavík 26
um 2 km

Hver spaði er um 80 m langur – lengri en Hallgrímskirkja er há (74,5 m). Spaðarnir 90 næðu jafnlangt og Vaðlaheiðargöng og væru meira en þrisvar sinnum lengri en allur Laugavegur.

Spaðar úr glertrefjum og epoxýi eru illendurvinnanlegir og þúsundir tonna hafa endað í landfyllingum. Samtök vindorkuiðnaðarins í Evrópu viðurkenna sjálf að endurvinnslulausnir séu hvorki nægilega þróaðar né samkeppnishæfar í verði. Iðnaðurinn setti sér sjálfviljugt bann við urðun frá 1. janúar 2026, en það er skuldbinding greinarinnar, ekki lög 17. Hver ber kostnaðinn þegar spaðarnir verða teknir niður?

06 / Raddir heimafólks

Það sem heimafólk segir.

Úr athugasemdum sem bárust við matsáætlun haustið 2020 06.

Halldóra Gunnarsdóttir, Kópaskeri

„Ég kann mjög vel við þetta ósnortna land á Hólaheiðinni, alveg laust við ljósmengun, sem sýnir manni tunglið, stjörnur og norðurljós.“ Hún spyr hvort myllurnar muni sjást eða heyrast frá kirkjugarði, byggðasafni og gönguleiðum.

Norðurhjari, ferðaþjónustusamtök

Mótmæltu því að svæðið væri kallað afskekkt og ferðaþjónusta lítil. Bentu á gistingu, Skjálftasetur, Byggðasafnið á Snartarstöðum, listaverkið Dansinn, Hallveigarlund, Fuglastíg og Norðurstrandarleið.

Ferðafélagið Norðurslóð

Ósnortin víðerni eru eftirsóknarverð fyrir göngu- og útivistarfólk. Stóru slíku svæði yrði spillt, gott skíðagöngusvæði eyðilagt og fornu þjóðleiðinni Hólsstíg megi ekki raska.

Jón Grímsson, Kópaskeri

Víðsýnið á Hólaheiði gerir svæðið einstakt til að njóta norðurljósa og stjörnuskoðunar, og rætt hefur verið um að nýta það í ferðaþjónustu yfir vetrarmánuðina.

Aðalsteinn Örn Snæþórsson, Víkingavatni

Rjúpnastofninn er í sögulegu lágmarki og fuglarnir eigi að fá að njóta vafans: rannsaka þurfi í tvö ár nema sýnt sé að engar viðkvæmar tegundir fari um svæðið.

Gunnar Einarsson, Daðastöðum

Skilgreina þarf hvað sé ásættanlegur fugladauði og hvernig verði brugðist við ef hann reynist meiri en gert var ráð fyrir – og hvort framkvæmdaraðili sé þá tilbúinn að hætta rekstri.

07 / Staða málsins

Stór ákvörðun.
Ferli sem skiptir máli.

Hér eru staðfestir áfangar úr fyrirliggjandi heimildum. Tillaga, umsögn og leyfi eru ólík skref.

Heimildir yfirfarnar í september 2026.

Lesa frumheimildir ↓
  1. Matsáætlun lögð fram

    Qair kynnti tillögu að matsáætlun fyrir 34 vindmyllur og 200 MW. 13 aðilar sendu athugasemdir. Skipulagsstofnun féllst á tillöguna með athugasemdum árið 2021 06 07.

  2. Mótmæli íbúa frestuðu skipulagsbreytingu

    Byggðarráð Norðurþings frestaði aðalskipulagsbreytingu eftir mótmæli íbúa við Öxarfjörð 09. Í lok ágúst samþykkti sveitarstjórn samhljóða að fresta umfjöllun um skipulagsbreytingar þar til umhverfismati lyki 11.

  3. Tillaga um biðflokk

    Verkefnisstjórn 5. áfanga rammaáætlunar skilaði tillögu um flokkun tíu vindorkukosta. Tillagan fyrir Hnotastein var biðflokkur, m.a. vegna óvissu um áhrif á fuglalíf, samfélagsleg áhrif og kostnað við tengingar 05.

  4. Fyrri meirihluti óskaði endurmats

    Meirihluti þáverandi sveitarstjórnar Norðurþings óskaði eftir því að Hnotasteinn yrði endurmetinn og færður úr biðflokki í nýtingarflokk 08.

  5. Ný sveitarstjórn

    Eftir sveitarstjórnarkosningar 16. maí myndaði Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Óskalisti nýjan meirihluta í Norðurþingi 28.

  6. Ný vindorkulög

    Alþingi samþykkti strangari reglur um vindorku. Afstaða sveitarfélaga verður grundvallarþáttur í mati rammaáætlunar á vindorkukostum, og sérstaklega verður horft til áhrifa á fuglalíf og víðerni 29.

  7. Engin formleg afstaða

    Sveitarstjórn tók fram að hún hefði ekki lýst yfir formlegri afstöðu til uppbyggingarinnar. Áhersla var lögð á samráð og heildstætt mat á áhrifum 04.

  8. Endurmat: aftur í biðflokk

    Hnotasteinn var metinn á ný í 6. áfanga rammaáætlunar. Verkefnisstjórnin leggur aftur til biðflokk – ekki nýtingarflokk. Áhrif á óbyggð víðerni eru metin þau mestu af sjö vindorkukostum og talin geta skert möguleika á ferðaþjónustu og útivist. Umsagnir má senda í Samráðsgátt til 4. janúar 2027 33. Sjá nýja matið ↑

  9. Nú er tækifærið

    Með nýju lögunum vegur afstaða Norðurþings þungt. Á meðan sveitarstjórn hefur ekki tekið afstöðu getur rödd íbúa og almennings haft áhrif. Skrifaðu undir ↓ Sendu umsögn um rammaáætlun ↗

Til samanburðar · Vaðölduver
14 + 14

Landsvirkjun gangsetti fyrsta vindorkuver landsins, Vaðölduver, 15. september 2026 með 14 vindmyllum; 14 til viðbótar rísa 2027 10. Þær myllur eru um 150 m háar í hæstu stöðu spaða 12 – á Hnotasteini er miðað við allt að 200 m.

08 / Afstaða okkar

Við viljum vernda framtíð Melrakkasléttu.

Við teljum að Melrakkaslétta eigi ekki að verða iðnaðarsvæði fyrir stórt vindorkuver.

Afstaða okkar byggir á mikilvægi náttúru, fuglalífs og landslags. Við teljum að staðsetning endurnýjanlegrar orkuframleiðslu skipti máli og að náttúruverðmæti Melrakkasléttu eigi að vega þungt í ákvörðuninni.

Skrifa rafrænt undir á Ísland.is með rafrænum skilríkjum ↗
09 / Spurt og svarað

Góðar spurningar eiga skýr svör skilið.

Eruð þið á móti allri vindorku?

Nei. Afstaða okkar snýst um staðsetningu. Við teljum að náttúruverðmæti Melrakkasléttu eigi að vega þungt þegar ákveðið er hvar vindorkuver rísa.

Verða vindmyllurnar örugglega 200 metrar?

Það er ekki endanlegt, því gerð vindmyllu hefur ekki verið valin. Í matsáætlun var miðað við að spaðaendi næði um 200 m frá jörðu, og Qair nefnir sömu hámarkshæð 02 06.

Sýna fuglatölurnar áhrif framkvæmdarinnar?

Nei. Tölurnar um lóm, himbrima og fálka eru gögn frá 2016 fyrir Melrakkasléttu alla. Þær sýna hvaða tegundir svæðið styður, en eru hvorki talning á Hnotasteini né spá um fugladauða 03.

Hefur Norðurþing samþykkt uppbygginguna?

Nei. Fyrri meirihluti óskaði í janúar 2026 eftir að Hnotasteinn yrði færður í nýtingarflokk, en ný sveitarstjórn hefur samkvæmt bókun 17. september 2026 ekki lýst yfir formlegri afstöðu 04 08.

Hvað breyta nýju vindorkulögin?

Lögin sem Alþingi samþykkti 19. júní 2026 útiloka vindorkuver á friðlýstum svæðum, Ramsar-svæðum og svæðum á B‑hluta náttúruminjaskrár. Hólaheiði fellur ekki undir þá flokka, svo Hnotasteinn er ekki sjálfkrafa útilokaður. Lögin gera hins vegar afstöðu sveitarfélagsins að grundvallarþætti í mati rammaáætlunar, og þess vegna skiptir afstaða Norðurþings – og undirskrift þín – máli 29 31.

Hvað þýðir biðflokkur rammaáætlunar?

Samkvæmt lögum nr. 48/2011 fara í biðflokk þeir kostir sem talið er að þurfi frekari upplýsingar um áður en hægt er að ákveða hvort þeir fari í nýtingar- eða verndarflokk. Hnotasteinn er því hvorki samþykktur né hafnaður. Í skýrslu verkefnisstjórnar (október 2026) fær Hnotasteinn hæstu einkunn sjö vindorkukosta fyrir áhrif á óbyggð víðerni (16,8 af 20) og faghópur 1 metur hann þann kost sem hefði mest áhrif á náttúru- og menningarminjar. Tillagan er í opnu samráði til 4. janúar 2027 og allir geta sent inn umsögn 33.

Er öll Melrakkaslétta friðlýst?

Nei. Svæðið er ekki friðlýst. Melrakkaslétta er á náttúruminjaskrá sem „aðrar náttúruminjar“ og skilgreind sem alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði. Hún er ekki meðal þeirra sjö svæða sem Alþingi setti á B‑hluta náttúruminjaskrár í nóvember 2025 30. Votlendi og nútímahraun á svæðinu njóta sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum 03 06.

Er þetta gild rafræn undirskrift?

Undirskriftin fer fram á undirskriftalistum Ísland.is og þú auðkennir þig með rafrænum skilríkjum. Þannig er tryggt að á bak við hverja undirskrift sé raunverulegur einstaklingur.

10 / Láttu rödd þína heyrast

Framtíð landsins kemur okkur við.

„Landið er fagurt og frítt“– Jónas Hallgrímsson, Ísland (1835)

  1. 1Lestu áskorunina.
  2. 2Auðkenndu þig með rafrænum skilríkjum á Ísland.is.
  3. 3Staðfestu undirskriftina – og deildu síðunni.

Söfnun lýkur 16. desember 2026

Mótmælum vindorkuveri við Hnotastein

Við undirrituð mótmælum áformum um uppbyggingu vindorkuvers á Hólaheiði við Hnotastein. Fyrirhuguð uppbygging mun hafa veruleg sjónræn áhrif á stórt svæði sem að öðru leyti er lítt snortið og einkennist af fáum sýnilegum mannvirkjum. Einnig getur framkvæmdin haft áhrif á fuglalíf sem er ríkulegt á svæðinu. Ósnortin víðerni eru dýrmæt og fáséð í Evrópu. Slík uppbygging myndi hafa varanleg og óafturkræf áhrif á landslag, náttúruupplifun og ímynd svæðisins. Uppbyggingin getur haft áhrif á lífsgæði íbúa, útivistarmöguleika og ferðaþjónustu á svæðinu. Við skorum á sveitarstjórn Norðurþings að falla frá hugmyndum um iðnaðarsvæði á Hólaheiði.

Söfnun stendur 16.09.2026 – 16.12.2026 · Ábyrgðarmaður: Halldóra Gunnarsdóttir

Skrifa rafrænt undir á Ísland.is með rafrænum skilríkjum ↗

Þú ferð yfir á Ísland.is. Þessi síða safnar engum persónuupplýsingum.

11 / Gögn og heimildir

Þú átt að geta sannreynt.

Áform framkvæmdaraðila, rannsóknargögn og opinberar bókanir eru merkt hvert fyrir sig.

  1. 01
    Framkvæmdaraðili · Qair Ísland · qair.isHnotasteinn – verkefnisyfirlitFjöldi vindmylla, uppsett afl og sjónarmið framkvæmdaraðila um ávinning.
    Opna ↗
  2. 02
    Framkvæmdaraðili · Qair Ísland · qair.isSpurt og svarað um framkvæmdinaHæð, val vindmylla og gróft mat á efni í undirstöður.
    Opna ↗
  3. 03
    NáttúrufræðistofnunMelrakkaslétta – mikilvægt fuglasvæði og náttúruminjaskráAfmörkun svæðis, náttúrufar, verndargildi og fuglagögn.
    Fuglasvæði ↗Náttúruminjaskrá ↗
  4. 04
    Norðurþing · 17.09.2026166. fundur sveitarstjórnarFormleg staða afstöðu sveitarstjórnar og áherslur um áhrif og samráð.
    Opna ↗
  5. 05
    Rammaáætlun · 2025Greinargerð faghóps 4 um vindorkukostiMat á vindorkukostum, m.a. tengikostnaði Hnotasteins. Samantekt á tillögu verkefnisstjórnar um biðflokk: Bændablaðið, 23.01.2026.
    Lokaskýrsla (PDF) ↗Greinargerð (PDF) ↗Bændablaðið ↗
  6. 06
    EFLA fyrir Qair · 25.02.2021Vindorkugarður að Hnotasteini – tillaga að matsáætlunFramkvæmdalýsing, umhverfisþættir og athugasemdir sem bárust.
    Opna ↗
  7. 07
    Skipulagsstofnun · 2021Ákvörðun um matsáætlunFallist á tillögu að matsáætlun með athugasemdum.
    Opna ↗
  8. 08
    Viðskiptablaðið · 01.02.2026Forsendurnar breyttarMeirihluti sveitarstjórnar óskar endurmats á Hnotasteini.
    Opna ↗
  9. 09
    Vísir · 22.07.2021Byggðarráð frestar aðalskipulagsbreytingu eftir mótmæli íbúaEldri frétt sem lýsir stöðu á birtingardegi sínum.
    Opna ↗
  10. 10
    Landsvirkjun · 15.09.2026Fyrsta vindorkuver landsins komið í gangVaðölduver gangsett með 14 vindmyllum; 14 til viðbótar 2027.
    Opna ↗
  11. 11
    Vikublaðið · 02.09.2021Sveitarstjórn frestar skipulagsbreytingum þar til umhverfismati lýkurTillaga um frestun samþykkt samhljóða í sveitarstjórn Norðurþings.
    Opna ↗
  12. 12
    Sunnlenska · 15.09.2026Fyrsta vindorkuver landsins komið í gangHæð vindmylla í Vaðölduveri.
    Opna ↗
  13. 13
    DTU · Energies · 2024 · ritrýntMicroplastics Emission from Eroding Wind Turbine Blades: Preliminary Estimations of VolumeMishnaevsky o.fl. Mat á losun plasts af spöðum á landi og á hafi úti.
    Opna ↗
  14. 14
    Wind Energy Science · 2025 · ritrýntEstimating microplastic emissions from offshore wind turbine blades in the Dutch North SeaCaboni o.fl. Samanburður á fyrri matsaðferðum, þ.m.t. norsku skýrslunni frá 2021.
    Opna ↗
  15. 15
    NedZero · hagsmunasamtök vindorku í HollandiLosun BPA frá vindmyllumSamantekt á mati á losun BPA og örplasts frá spöðum. Birt af hagsmunaaðila.
    Opna ↗
  16. 16
    Solberg o.fl. · Noregi · 2021 · ekki ritrýntForurensing fra vindturbinvinger / Leading Edge erosion and pollution from wind turbine blades„The Turbine Group“. Skýrsla um norskar aðstæður sem mat losun mun hærri en síðari ritrýndar rannsóknir.
    Norsk útgáfa ↗Ensk útgáfa ↗
  17. 17
    WindEurope · samtök vindorkuiðnaðarins í EvrópuWind industry calls for Europe-wide ban on landfilling turbine bladesStaða endurvinnslu spaða og sjálfviljugt urðunarbann greinarinnar.
    Opna ↗
  18. 18
    Tækniupplýsingar · wind-turbine-models.comVestas V162 – snúningshraði og spaðaflöturHámarkssnúningur 10 sn./mín., 162 m spaðahringur, 20.612 m² spaðaflötur.
    Opna ↗
  19. 19
    J. R. Soc. Interface · 2013 · ritrýntAir speeds of migrating birds observed by ornithodolitePennycuick o.fl. Mældur flughraði m.a. lóms (20,6 m/s), hafarnar (14,4 m/s) og grálóu (16,5 m/s).
    Opna ↗
  20. 20
    Birds of the World · Cornell LabCommon Loon – Movements and MigrationHimbrimi á farflugi, um 121 km/klst., mælt með ratsjá (Kerlinger 1982).
    Opna ↗
  21. 21
    Wikipedia · samantektList of birds by flight speedFlughraði álftar og fálka, með vísun í frumheimildir.
    Opna ↗
  22. 22
    Wikipedia · samantektDrumming (snipe)Hraði hrossagauks í hneggflugi, um 39–84 km/klst.
    Opna ↗
  23. 23
    Birds of the World · Cornell LabGyrfalcon – BehaviorSteypiflug fálka (Tucker o.fl. 1998).
    Opna ↗
  24. 24
    Vaðlaheiðargöng hf.Um gönginGöngin eru um 7,2 km í bergi, alls um 7,5 km með vegskálum.
    Opna ↗
  25. 25
    VísindavefurinnHver eru lengstu göng Íslands?Lengdir veggangna á Íslandi, m.a. Héðinsfjarðarganga og Hvalfjarðarganga.
    Opna ↗
  26. 26
    I Am ReykjavíkLaugavegurLaugavegur er um 2 km, frá Kringlumýrarbraut að Bankastræti.
    Opna ↗
  27. 27
    Náttúrufræðistofnun · 2025Mat fugla á válista 2025Rjúpa og grágæs eru meðal 19 tegunda í yfirvofandi hættu.
    Opna ↗
  28. 28
    Vísir · 2026Sveitarstjórnarkosningar 2026Nýr meirihluti myndaður í sveitarstjórn Norðurþings.
    Opna ↗
  29. 29
    Stjórnarráðið · 19.06.2026Strangari reglur um vindorku samþykktar á AlþingiÚtilokun friðlýstra svæða og B‑hluta náttúruminjaskrár; afstaða sveitarfélaga grundvallarþáttur.
    Opna ↗
  30. 30
    Stjórnarráðið · 14.11.2025Þingsályktun um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár samþykktSjö svæði á B‑hluta 2025–2029. Melrakkaslétta er ekki þar á meðal.
    Opna ↗
  31. 31
    Bændablaðið · 24.09.2026Spurningar um vernd og vindFréttaskýring um nýju lögin; Hnotasteinn nefndur meðal verkefna í ferli.
    Opna ↗
  32. 32
    Kúlumyndir · 03.10.2026360° myndir af Melrakkasléttu með vindmyllumLjósmynd tekin 3. október 2026; 30 vindmyllur settar inn í 14 km og 3 km fjarlægð.
    Opna ↗
  33. 33
    Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar · 13.10.2026Tillaga að flokkun sjö vindorkuverkefna – Hnotasteinn í biðflokkOpið samráð 12. október 2026 – 4. janúar 2027 (mál 4349). Víðerni 16,8 af 20, hæst sjö kosta.
    Skýrsla (PDF) ↗Samráðsgátt ↗
  34. 34
    Vísir · 12.05.2026Blásið á bull V-listans og MiðflokksinsFriðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair Ísland: allt að 30 myllur, 200 m, 7,2 MW hver.
    Opna ↗
  35. 35
    Vísir · 06.05.2026Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkarSkoðanagrein, Árdís H. Jónsdóttir, Öxarfirði.
    Opna ↗
  36. 36
    Vísir · 19.06.2026Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarinsSkoðanagrein, Anna Soffia Kristjánsdóttir.
    Opna ↗

Síðast uppfært 19. október 2026. Eldri gögn geta miðað við aðra útfærslu. Við tengjum hverja lykilfullyrðingu við þá heimild sem hún byggir á.

Kort af Melrakkasléttu sem sýnir rannsóknarsvæðið að Hnotasteini innan mikilvægs fuglasvæðis

Rannsóknarsvæðið að Hnotasteini (gulgrænt). Kort byggt á korti EFLU. Smelltu á kortið til að stækka meira.

Mótmælum vindorkuveri við Hnotastein

Vindorkuver á Hólaheiði við Hnotastein hefði veruleg sjónræn áhrif á stórt og lítt snortið svæði og gæti haft áhrif á ríkulegt fuglalíf. Við skorum á sveitarstjórn Norðurþings að falla frá hugmyndum um iðnaðarsvæði á Hólaheiði.

Lesa allan texta áskorunarinnar
Við undirrituð mótmælum áformum um uppbyggingu vindorkuvers á Hólaheiði við Hnotastein. Fyrirhuguð uppbygging mun hafa veruleg sjónræn áhrif á stórt svæði sem að öðru leyti er lítt snortið og einkennist af fáum sýnilegum mannvirkjum. Einnig getur framkvæmdin haft áhrif á fuglalíf sem er ríkulegt á svæðinu. Ósnortin víðerni eru dýrmæt og fáséð í Evrópu. Slík uppbygging myndi hafa varanleg og óafturkræf áhrif á landslag, náttúruupplifun og ímynd svæðisins. Uppbyggingin getur haft áhrif á lífsgæði íbúa, útivistarmöguleika og ferðaþjónustu á svæðinu. Við skorum á sveitarstjórn Norðurþings að falla frá hugmyndum um iðnaðarsvæði á Hólaheiði.

Söfnun stendur 16.09.2026 – 16.12.2026 · Ábyrgðarmaður: Halldóra Gunnarsdóttir

Skrifa rafrænt undir á Ísland.is með rafrænum skilríkjum ↗

Þú ferð yfir á Ísland.is. Þessi síða safnar engum persónuupplýsingum.

Skrifa rafrænt undir á Ísland.is með rafrænum skilríkjum ↗